Jólaviðtal 2008
KOKKAGALLINN KEMUR MEÐ JÓLASKAPIÐ
12. desember 2008
Björgvin Halldórsson heldur tónleikana Jólagestir Björgvins í annað sinn um helgina í Laugardalshöllinni. Eftir að hafa fyllt Höllina þrisvar sinnum í fyrra og með Sinfóníuhljómsveit íslands í hitteðfyrra var ákveðið að gera Jólagestina að árlegum viðburði. En eftir að efnahagshamfarir undanfarina mánaða dundu yfir var óvíst hvort grundvöllur væri fyrir tónleikunum. Það kom hins vegar á daginn að jólaandi landsmann var mun sterkari en kreppan og er nú að verða uppselt á tvenna tónleika Jólagesta Björgvins.
Eins og ekkert hafi í skorist
„Þetta er í annað skipti sem við höldum þessa tónleika,“ segir Björgvin Halldórsson stórsöngvari. „Margir rugla þessum tónleikum við þá sem ég hélt með Sinfóníuhljómsveitinni árin á undan.“ Það er óhætt að segja að Jólagestirnir hafi slegið gegn á sínu fyrsta ári Þá voru eins og áður sagði haldnir þrennir tónleikar í Laugardalshöllinni og troðfullt á þá alla. Eftir þær móttökur var mikill hugur í Björgvini og hans fólki að gera tónleikana að árlegum viðburði.
„En eftir að að þessi efnahagsósköp dundu yfir okkur vorum við hreinlega ekki viss hvort það væri stemning í þjóðfélaginu fyrir þessu,“ segir Björgvin og vísar þar til hruns bankakerfisins og þeirra óskapa sem fylgja nú í kjölfarið. „Við settum þá af stað fókusgrúppu meðal samstarfsmanna og fólks sem við þekkjum. Það voru bara það góðar undirtektir að við ákváðum að kýla á þetta eins og ekkert hefði í skorist. Setja undir sig hausinn eins og menn segja og hafa sama miðaverð og í fyrra.“
Það virðist hafa verið nokkuð góður fókusinn hjá fókusgrúppu Björgvins því það seldist upp á fyrri tónleikana á mettíma. Það var því ákveðið að halda aðra tónleika fyrr um daginn og eru örfáir miðar eftir á þá. „Við vorum með þrenna tónleika í fyrra en þá var mikið um að fyrirtæki og stofnanir væru að kaupa miða. Núna er mun minna um það þannig að við erum mjög ánægð með aðsóknina.“
80-90 manna verkefni
Björgvin segir það ljóst að landsmenn vilji halda í jólastemninguna og slaka aðeins á. „Fólk vill dreifa huganum þrátt fyrir erfiða tíma og halda í svona hluti. Það er oft þannig að fólk sækir í svona hluti sem hafa áður talist sjálfsagðir hlutir,“ en jólatónleikar Björgvins eru eflaust orðnir partur af jólaundirbúningnum hjá mörgum landsmönnum.
Líkt og í fyrra er fjöldinn allur af þekktum söngvurum sem koma fram á tónleikunum. Þar má meðal annars nefna Eyjólf Kristjánsson, Guðrúnu Gunnarsdóttur, Helga Björns, Ladda, Ragga Bjarna, Siggu Beinteins, Stefán Hilmarsson og Svölu Björgvins. „Núna bætast líka við Páll Óskar og Monica og Krummi og Daníel Ágúst. Síðan er Kristján Jóhannsson sérstakur gestur líka,“ en Kristján kom til landsins aðfaranótt fimmtudags til þess að syngja á tónleikunum. Helgi Björns kemur frá Þýskalandi og Sigga Beinteins frá Noregi
„Síðan voru að bætast við hljómsveitina Sigurgeir Sigmundsson á gítar og Pétur Grétarsson á slagverk,“ en 10 manna hljómsveit er á tónleikunum. „Síðan erum við með 18 manna strengjasveit í viðbót við það og karlakórinn Voces Masculorum,“ en Fóstbræður sungu á tónleikunum í fyrra. „Þetta er frábær kór sem er skipaður ungum mönnum og eru helst þekktir fyrir sinn frábæra söng í kirkjum landsins. Óskar Einarsson og Gospel-systur syngja svo bakraddir auk Eyjólfs Kristjáns og Guðrúnar Gunnars sem bæði syngja sólónúmer líka.“ Ofan á þetta allt er svo 20 barna kór frá Kársnessskóla. „Þetta er svona í stærri kantinum. Með öllu starfsfólki og þeim sem koma fram eru á milli 80 og 90 manns sem koma að þessu.“ Björgvin er í skýjunum með leikmyndina sem er í höndum Lúxor og Björns G Björnssonar en Bravo heldur tónleikana. Þórir Baldursson útsetur tónlistina
Þrátt fyrir þetta mikla umfang eru þetta ekki stærstu tónleikar sem Björgvin hefur haldið. „Tónleikarnir með Sinfóníusveitinni voru enn stærri. Þá voru um 150 manns á sviðinu. Þegar mest var“
Nýjasta í uppáhaldi
Eftir að hafa gefið út fjórar plötur með jólagestum og sungið ótal jólalög segir Björgvin erfitt að gera upp á milli þeirra. „Þau eru orðin svo mörg. Þegar maður er búinn að syngja þessi lög sleppir maður þeim. Þetta eru eins og börnin manns. Þá fara þau út í lífið og lifa sjálfstæðu lífi. En það er þannig með mig að ég held yfirleitt mest upp á það sem ég er nýbúinn að gera.“
Björgvin segir gamlan slagara með Nat King Cole vera í uppáhaldi þessa stundina. „Það heitir á íslensku Við vöggu í Betlehem og við vorum að æfa það í gær. Það er mjög fallegt og hugnæmt lag,“ en Björgvin er fyrstur til þess að syngja lagið á íslensku við texta Jónasar Friðriks Guðnasonar. „Það kemur sérstaklega vel út. Það er með kór, strengjum og öllu tilheyrandi.“
Á tónleikunum verða leikin ein 26 lög en mörg þeirra eru af plötum Björgvins, Jólagestir, sem og lög sem flytjendur á þessum tónleikum hafa gert vinsæl í gegnum tíðina. „Við högum lagavalinu í stíl við hugarþel fólks í dag og það fá allir eitthvað við sitt hæfi,“ en Björgvin segir það allt öðruvísi að spila á jólatónleikum heldur en venjulegum popptónleikum. „Það er alltaf mjög sérstakt að flytja svona hátíðarlög. Stemningin er ljúfsár.“
Kokkagallinn kemur með jólaskapið
Þó að Björgvin hjálpi þúsundum íslendinga að komast í jólaskapið segist hann oftast komast sjálfur í gírinn rétt fyrir jól. „Það er yfirleitt bara á Þorláksmessu. Þá hittumst við vinafólk, fáum okkur að borða og ræðum jólin og árið sem er senn á enda. Svo þegar maður kemst í kokkagallann og fer að elda jólamatinn kemst maður endanlega í gírinn.“
Björgvin segist fá að vera yfir pottunum í eldhúsinu á aðfangadag en eins og á öðrum heimilum ríkir mikil hefð varðandi jólamatinn. „Við erum vön því að vera með kalkún á aðfangadag,“ segir Björgvin en það er nokkuð frábrugðið öðrum íslenskum heimilum þar sem rjúpa og hamborgarhryggur ráða oftar en ekki ríkjum.
Fjölskyldan í útgáfu
Björgvin hefur undanfarið verið að vinna að útgáfu en hann aðstoðaði bæði Krumma son sinn og Svölu dóttur sína við að gefa út plötur nýlega. „Ég hjálpaði Krumma og Danna, sem eru saman með hljómsveitina Esju, með þeirra plötu og svo voru Svala og Steed Lord að senda frá sér plötu í vikunni. Ég er svona á kantinum að hjálpa þeim. Maður hefur gefið svolítið út sjálfur í gegnum tíðina og er ýmsum hnútum kunnugur.“
Björgvin segist hafa mjög gaman af því að vinna með þeim Krumma og Svölu. „Maður er að fara í gömlu sporin sín og rifja upp hvernig þetta var. Þó þetta gangi nú allt miklu hraðar en þegar við vorum að gera þetta. Þá var ekkert sjónvarp á fimmtudögum, ekkert internet, enginn gemsi og allt í sauðalitunum.“
Björgvin hefur líka verið að vinna að plötu með Ladda og eru þeir félagar komnir vel á veg með hana. „Við erum hálfnaðir með plötuna hans og hún kemur sennilega út snemma á næsta ári.
En Björgvin er ekki bara að aðstoða aðra við að gefa út heldur er hann að vinna að tveimur plötum sjálfum. „Ég er að vinna sólóplötu sem verður svolítið frábrugðin því sem ég hef verið að gera.“ Björgvin segir plötuna enn vera í mótun en hann lýsir henni sem minimalískri. „Það er lítið um strengi og lúðra en mikið af míkrafónum.“ Mikið af frumsömdu efni eftir Björgvin verður að finna á plötunni.
„Hin platan verður svolítið leyndardómsfull með gestum. Ég er svo gestkvæmur og mikil félagsvera,“ segir Björgvin léttur. „Ég hef mjög gaman af því að fá fólk saman í stór verkefni. Það er skemmtilegra heldur en að spila og syngja allt sjálfur.“
Fyrst og fremst þakklátur
Þegar Björgvin lítur til baka yfir feril sinn segist hann fyrst og fremst vera þakklátur. „Það sem stendur upp úr er að geta ennþá verið að vinna að þessu og hafa svona gaman af. Að geta ennþá starfað með þessu frábæra fólki sem ég hef unnið með í gegnum tíðina. Ég hef nú bara staðið á öxlunum á því fólki.“
Björgvin segist aldrei hafa ætlað að leggja sönginn fyrir sig. „Þetta greip mig bara á flugi og ég dróst inn í þetta. Maður er þó þakklátur fyrir það í dag. Ég held að maður væri nú lítilfjörlegur án tónlistarinnar.“
asgeir@dv.is